17. mars 2026

Aðalfundir húsfélaga 2026

Eftir Oddur Ragnar Þórðarson
Aðalfundir húsfélaga 2026

Aðalfundir húsfélaga 2026

Eitt mikilvægasta verkefni hvers húsfélags er að halda árlega aðalfund húsfélagsins. Fjöleignahúsalög mælast til þess að aðalfundir séu haldnir á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Í lögunum eru einnig lagðar línur um það hvaða verkefni sé ætlast til að húsfélög taki sérstaklega til á aðalfundum, síðan er hægt að bæta hefðbundnum dagsskráratriðum við þá dagsskrárliði. Aðeins á aðalfundi er ársreikningur kynntur fundarmönnum til upplýsingar um hvernig fjárhagurinn þróaðist árið á undan. Á aðalfundi er stjórn kosin og kjör stjórnar, ef svo á við. Á aðalfundi eru húsgjöld ákveðin fram til næsta aðalfundar. Til þess að allar ákvarðanir séu löglegar og gjöldum sé hægt að breyta verður að gæta þess að fundarboð séu rétt út færð og lagalega komið til skila til eigenda / fundarmanna.
Til baka í fréttir